Fotbolti.net
26.09.26 - 19:43
Magnús Atlason

Hákon Rafn: Ég sé ekki boltann nógu vel

Auglýsing
Hákon Rafn Valdimarsson, maður leiksins.

Hákon Rafn Valdimarsson, maður leiksins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland gerði afar svekkjandi 1-1 jafntefli við Eistland nú í dag. Fótbolti.net náði tali af Hákoni Rafni Valdimarssyni, manni leiksins, eftir leik í dag.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Eistland
"Ekki nógu gott. Við ætluðum okkur að vinna leikinn, vorum komnir yfir. Ekki nógu gott en það er stutt á milli leikja og við þurfum strax að gera okkur undirbúna fyrir næsta leik."

"Hvernig fannst þér þín frammistaða í dag?"

"Byrjaði nokkuð vel en við ætluðum alls ekki að fá á okkur svona mörg færi. Það var ekki alveg planið. En gaman að spila og ég á nokkrar góðar vörslur."

Hvernig fannst Hákoni markið sem hann fékk á sig?

"Fyrirgjöf, við verðum að koma í veg fyrir þessar fyrirgjafir, og skalli. Ég sé ekki boltann alveg nógu vel, það pirrar mig mikið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.