26.09.26 - 19:31
Magnús Atlason
Orri Steinn: Mörkin munu koma á færibandi seinna meir
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland gerði afar svekkjandi 1-1 jafntefli við Eistland nú í dag. Fótbolti.net náði tali af Orra Steini Óskarssyni eftir leik í dag.
"Svekktur. Auðvitað leikur sem vildum vinna og við hefðum átt að vinna. Ég er svosem alveg rólegur líka, það eru þrír leikir eftir í þessum glugga og fimm eftir í riðlinum þannig að það er nóg eftir og ég efast ekki um að þetta verði betra og betra með hverjum leiknum."
"Hvað fannst þér vanta sóknarlega séð í dag."
"Það vantaði bara þennan herslumun á síðasta þriðjung. Að klára færin og ná þessari tá í boltann til að koma honum inn. "
´"Ég veit að við getum klárað færi og á meðan við erum að komast í stöðurnar til að gera það veit ég að mörkin munu koma inn á færibandi seinna meir."