Fotbolti.net
26.09.26 - 19:15
Kári Snorrason

Andri Lucas: Hefðum átt að nýta okkur það betur

Auglýsing
Andri Lucas: Hefðum átt að nýta okkur það betur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland gerði aðeins jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Slæm byrjun Íslands í riðlinum og frammistaðan vonbrigði.

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði eina mark Íslands í leiknum og ræddi við Fótbolta.net eftir leik. Hvernig meturðu leikinn í kvöld?
„Ekki sá besti... vonbrigði eiginlega. Við áttum að vinna þennan leik en náðum ekki að gera það. Endar 1-1 jaftnefli... en bara áfram gakk," sagði Andri Lucas.

Hann kom Íslandi í 1-0 rétt fyrir hálfleik.

„Við hefðum átt að nýta okkur það betur að fara inn í seinni hálfleikinn yfir. Við vorum ekki nægilega hraðir á boltanum, komumst í ágætis stöður en síðasta sendingin var aldrei alveg nægilega góð. Svo fáum við á okkur klaufalegt mark."

„Það er alltaf gaman að skora fyrir landsliðið en svekkjandi að taka ekki stigin þrjú."

Sjáðu viðtalið í heild hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.