„Geggjaður dagur fyrir Guðjohnsen fjölskylduna“ - Andri Lucas og bróðir hans funheitir
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði og lagði upp í 3-0 sigrinum gegn Lúxemborg í kvöld. Hann kom Íslandi yfir og lagði svo upp mark fyrir Orra Stein Óskarsson. Stoðsending úr efstu hillu.
„Já þetta var fín sending. Ég fann á mér og leit yfir hægri öxlina og sá að Orri var í stöðu til að taka hlaup í gegn, ég ákvað að setja boltann í svæði og hitti boltann vel með hælnum," segir Andri.
Hann segist þó ánægðari með markið en stoðsendinguna. „Sem framherji vill maður alltaf skora, ég er líka þvílíkt ánægður með að Orri skoraði líka. Hann lagði upp markið mitt og þetta var mjög jákvæður dagur fyrir okkur framherjana."