Fotbolti.net
29.09.26 - 22:38
Kári Snorrason

Gylfi ánægður með kvöldið - „Verð aðeins þreyttari á morgun“

Auglýsing
Gylfi ánægður með kvöldið - „Verð aðeins þreyttari á morgun“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Ísland vann 3-0 sigur á Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildarinnar fyrr í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn og var að vonum ánægður með úrslitin er hann ræddi við Fótbolta.net eftir leik.

„Mjög ánægður, höldum hreinu og skorum þrjú á útivelli. Þeir voru mikið með boltann en sköpuðu sér engin færi. Ég er mjög ánægður með kvöldið,“ sagði Gylfi.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 3 Ísland
Aðspurður um hvernig skrokkinum liði eftir 90 mínútur sagði Gylfi hann vera fínan. „Ég verð örugglega aðeins þreyttari á morgun. Það er aðallega vökvatapið í svona miklum raka og mikið af hlaupum án bolta. En ég er fínn, kvarta ekki.“

Andri Lucas og Orri Steinn voru heitir í fremstu línu Íslands og lögðu upp á hvorn annan. „Þeir eru báðir líkamlega sterkir og fljótir. Varnarmennirnir þeirra voru í miklum vandræðum með þá. Við vorum þéttir til baka og nýttum okkur að sækja hratt á þá,“ sagði Gylfi.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.