29.09.26 - 22:36
Kári Snorrason
Logi: Tala um hárlit og eitthvað bull
Kári Snorrason skrifar frá Lúxemborg:
Auglýsing

Logi er sáttur við hárlitinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Logi er sáttur við hárlitinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Logi Tómasson kom virkilega flottur inn í vinstri bakvörðinn, bæði sóknar- og varnarlega, í 3-0 sigrinum gegn Lúxemborg í kvöld.
„Fagleg frammistaða á erfiðum útivelli. Þetta var mjög mikilvægur sigur og þroskuð frammistaða," segir Logi. Hann tekur undir orð Arnars um að leikmenn hafi verið reiðir eftir að hafa aðeins gert jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leik.

Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 3 Ísland
„Við erum allir mjög faglegir og viljum allir ná miklum árangri. Það fer í taugarnar á okkur þegar spekingarnir tala um að við séum ekki í fókus eða eitthvað svoleiðis, um einhvern hárlit og eitthvað bull. Maður er búinn að vera það lengi í þessu að maður lætur það ekki hafa áhrif á sig."
Voru menn eitthvað ósáttir við hárlitinn á þér?
„Ég er sáttur allavega og það er það eina sem skiptir mig máli."
Logi var sáttur við sína frammistöðu.
„Það var mikil orka upp og niður, þessi staða hentar mig vel. Ég var glaður að fá tækifærið og nýtti það vel."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.