Daníel Gudjohnsen: Reyni að sýna hversu góður ég er hérna eða í A landsliðinu


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan var gríðarlega sáttur eftir 5-1 sigurinn á Sviss fyrr í dag í Laugardalnum þar sem strákarnir okkar nældu sér í ansi góða líflínu fyrir umspilssæti í lokakeppni EM u21.
„Þetta var bara geðveikur leikur hjá liðinu, við vorum með þennan leik allan tímann. Þó við byrjum seinni hálfleikinn á því að fá á okkur mark þá var ég aldrei stressaður fyrir því hvernig þessi leikur myndi enda.''
„Við erum með frábært lið og við gerðum allt vel í dag.''
„Ég myndi ekki segja það, auðvitað er enginn sáttur með hvernig A landsliðið spilaði gegn Eistum, en það er bara eðlilegt, þú átt stundum lélega leiki. Hvernig ég er búinn að sjá landsliðið spila og ég er búinn að vera partur af þessu, ég hef mjög mikla trú á að þetta landslið geti gert eitthvað, hefði bæði trú á að A landsliðið geti gert eitthvað og við hérna, ég reyni bara að sýna hversu góður ég er sama hvort það er hérna eða í A landsliðinu.''
