29.09.26 - 22:22
Kári Snorrason
„Geggjaður dagur fyrir Guðjohnsen fjölskylduna“ - Andri Lucas og bróðir hans funheitir
Kári Snorrason skrifar frá Lúxemborg:
Auglýsing

Andri Lucas Guðjohnsen.

Mynd: KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan skoraði gegn Frökkum á dögunum og svo tvö gegn Sviss með U21 landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas Guðjohnsen.

Mynd: KSÍ

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði og lagði upp í 3-0 sigrinum gegn Lúxemborg í kvöld. Hann kom Íslandi yfir og lagði svo upp mark fyrir Orra Stein Óskarsson. Stoðsending úr efstu hillu.
„Já þetta var fín sending. Ég fann á mér og leit yfir hægri öxlina og sá að Orri var í stöðu til að taka hlaup í gegn, ég ákvað að setja boltann í svæði og hitti boltann vel með hælnum," segir Andri.
Hann segist þó ánægðari með markið en stoðsendinguna. „Sem framherji vill maður alltaf skora, ég er líka þvílíkt ánægður með að Orri skoraði líka. Hann lagði upp markið mitt og þetta var mjög jákvæður dagur fyrir okkur framherjana."

TENGT EFNI
Víðir Sig: Guðjohnsenar spila og skora í hálfa öld
Andri segist ánægður með gott svar eftir slaka frammistöðu gegn Eistlandi. Hann sjálfur er kominn með tvö mörk og stoðsendingu í fyrstu tveimur leikjum Þjóðadeildarinnar.
„Það er bara geggjað. Leikstíllinn sem við erum að spila hentar mér vel. Arnar veit hvernig á að ná því besta úr mér."
Daníel Tristan Guðjohnsen, bróðir Andra, skoraði tvö og var besti maður vallarins fyrr í dag þegar U21 landsliðið gjörsigraði Sviss 5-1.
„Þetta var bara geggjaður dagur fyrir Guðjohnsen fjölskylduna. Ég hringi í hann núna í rútunni á leið upp á hótel. Hann er frábær leikmaður og hefur þegar spilað nokkra A-landsleiki og stóra leiki eins og þegar hann byrjaði gegn Frakklandi. Hann nær vonandi að koma sér almennilega í gang hjá Malmö og upp í A-landsliðið sem fyrst."
Viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan.