Fotbolti.net
29.09.26 - 22:15
Kári Snorrason

Arnar fann reiði í liðinu - „Fyrsta sinn sem ég tek ekki halelúja ræðu“

Auglýsing
Arnar fann reiði í liðinu - „Fyrsta sinn sem ég tek ekki halelúja ræðu“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
„Þetta var frábær dagur fyrir íslenskan fótbolta; U17 liðið gerði vel, síðan U21 liðið. Við vildum ekki vera neinir eftirbátar í kvöld. Þetta var mjög fagmannleg frammistaða,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 3 Ísland
Jákvæð reiði í liðinu
Arnar segir ekki hafa þurft að hafa fyrir því að kveikja í mönnum eftir tap liðsins gegn Eistlandi síðastliðinn laugardag.

„Ég fann að menn voru reiðir. Reiðir inn í sér á jákvæðan hátt, menn vildu svara fyrir sig. Þetta var í fyrsta skipti sem eg tók enga halelúja ræðu fyrir leik. Ég þurfti þess ekki. Ég fann að menn voru einbeittir frá fyrstu mínútu eftir að leik lauk á móti Eistlandi,“ sagði Arnar.

„Mér fannst við hafa þroskast aðeins af þessum eina leik. Stundum þarftu einn og einn leik til þess að fara upp stigann. Vonandi verður framhald þar á. Það er betri tilfinning í klefanum núna en á laugardaginn,“ sagði Arnar jafnframt.

Hafa allir skoðanir
Umræðan var á köflum mjög neikvæð um landsliðið eftir leikinn gegn Eistlandi á laugardaginn var. Arnar var spurður hvort að með sigrinum fylgdi mikill léttir.

„Það er alltaf skemmtilegra að sigra. Ég skil þessa umræðu, það er ekkert mál. Maður vill alltaf vernda strákana frá þessu - þannig að þeir séu mögulega að lesa eitthvað sem fer illa í þá. Þeir eru mögulega jafn vanir og ég að heyra eitthvað neikvætt um sig. Það hafa allir skoðanir á landsliðinu, þannig á það líka að vera,“ sagði Arnar.

Arnar fann reiði í liðinu - „Fyrsta sinn sem ég tek ekki halelúja ræðu“
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.