Fotbolti.net
28.09.26 - 12:57
Elvar Geir Magnússon

Júlíus Mar: Henda bara í aðra styttingu

Auglýsing
Júlíus Mar Júlíusson.

Júlíus Mar Júlíusson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Á morgun klukkan 15 leika strákarnir í U21 landsliðinu við jafnaldra sína frá Sviss í undankeppni EM. Ísland þarf á sigri að halda í baráttunni um 2. sæti riðilsins.

„Þetta er leikur sem við ætlum að vinna til að eiga möguleika á umspilinu. Þetta er góð áskorun á okkur að sýna hvað við erum góðir eftir góða frammistöðu á móti Frökkum. Það var góður leikur hjá liðinu heilt yfir og vonandi getum við skapað enn meira á móti Sviss og skorað fleiri mörk," segir Júlíus Mar Júlíusson, varnarmaður U21 landsliðsins.
Hann segir að stuðningurinn gegn Frökkum hafi gefið liðinu mikið og hvetur fólk til að stytta vinnudaignn á morgun.

„Það var mjög gaman að sjá fulla stúku og að fólk hafi áhuga á að mæta. Stuðningurinn gaf okkur mikið og ég hvet alla til að mæta á morgun."

Júlíus spilar fyrir Kristiansund í Noregi en liðið er í harðri baráttu við falldrauginn. Júlíus er bjartsýnn fyrir baráttuna framundan.

„Það er skemmtilegt verkefni, mikilvægir leikir framundan og það er gaman að spila þegar það er mikið undir. Mér finnst við vera með betra lið eftir sumargluggann. Það hafa komið góðir leikmenn inn og ég er bara bjartsýnn á framhaldið," segir Júlíus.

„Bara mjög vel, lífið er indælt og ég er að spila alla leiki. Það er bara geggjað."
Júlíus Mar: Henda bara í aðra styttingu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.