29.09.26 - 18:44
Sigurjón Árni Torfason
Eggert Aron: Við getum keppt við bestu liðin
Auglýsing

Eggert Aron er fyrirliði u21 landslið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tók á móti Sviss á Pepsi-vellinum í Laugardalnum í dag. Leiknum lauk með 5–1 sigri íslenska liðsins, sem spilaði afar vel og nánast óaðfinnanlega í dag.
Eggert Aron, fyrirliði liðsins, átti mjög góðan dag á miðjunni. Fótbolti.net var á staðnum og tók stöðuna á Eggerti eftir leik.

Lestu um leikinn: Ísland U21 5 - 1 Sviss U21
„Frábær leikur ofan á síðasta leik, ég man ekki hvenær, var bara á móti Frökkum. Við sýndum bara hversu gott lið við erum, við erum hörkulið og á köflum sýndum við bara að við getum keppt bara við bestu liðin og mér fannst bara frábært að sýna í svona leik í dag, svona mikilvægum leik að hversu gott lið við erum.
Samkvæmt veðbönkum voru Svisslendingar taldir líklegri til sigurs fyrir leikinn, en íslenska liðið valtaði yfir þá frá fyrstu mínútu.
„Við erum með frábært lið, frábæra leikmenn og þú veist, við erum búin að ná einhverju takti sem að er erfitt að finna í landsliðsbolta og hérna, ég er bara hrikalega ánægður með strákana og hérna, pínu stoltur bara og við eigum bara geggjaðan leik í næstu viku á þriðjudaginn í Færeyjum."
Sagði Eggert við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.