Logi: Tala um hárlit og eitthvað bull
Logi Tómasson kom virkilega flottur inn í vinstri bakvörðinn, bæði sóknar- og varnarlega, í 3-0 sigrinum gegn Lúxemborg í kvöld.
„Fagleg frammistaða á erfiðum útivelli. Þetta var mjög mikilvægur sigur og þroskuð frammistaða," segir Logi. Hann tekur undir orð Arnars um að leikmenn hafi verið reiðir eftir að hafa aðeins gert jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leik.