Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 04. október 2015 16:30
Arnar Geir Halldórsson
Lukaku: Við áttum að vinna leikinn
Mynd: Getty Images
Stjarna Everton, Romelu Lukaku, var svekktur eftir að lið hans gerði 1-1 jafntefli við Liverpool á Goodison Park í dag.

„Við áttum skilið að vinna í dag, við stjórnuðum leiknum. Mignolet átti nokkrar góðar vörslur en við áttum að nýta yfirburðina betur."

Danny Ings skoraði fyrsta mark leiksins á 41.mínútu en Lukaku svaraði fljótt aftur.

„Það var erfitt að fá á sig mark rétt fyrir hlé en við vorum heppnir að jafna strax og það gaf okkur aukinn kraft fyrir síðari hálfleikinn."

„Við vorum meira með boltann en náðum ekki að koma nógu mikið af skotum á markið í seinni hálfleik,"
sagði Lukaku.


Athugasemdir
banner
banner