Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 08. desember 2017 21:25
Ingólfur Stefánsson
Gunnar Örvar og Sigurður Marínó fara frá Þór - Á leið í Magna
Sigurður Marínó Kristjánsson
Sigurður Marínó Kristjánsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Gunnar Örvar Stefánsson og Sigurður Marínó Kristjánsson hafa bæst í hóp þeirra leikmanna sem yfirgefa Þór.

Nú þegar hefur verið tilkynnt að þeir Kristján Örn Sigurðsson, Orri Freyr Hjaltalín og Jóhann Helgi Hannesson munu ekki leika með liðinu á næsta tímabili.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru þeir Gunnar Örvar og Sigurður Marinó á leið í Magna Grenivík sem mun leika í Inkasso deildinni í fyrsta skipti næsta sumar.

Þórsarar gengu fyrr í kvöld frá kaupunum á bandaríska framherjanum Anthony Powell. Einnig hafa varnarmennirnir Admir Kubat og Bjarki Þór Viðarsson gengið til liðs við Þór ásamt framherjanum Alvaro Montejo Calleja.
Athugasemdir
banner