Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 10. janúar 2018 22:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Real gerði jafntefli gegn B-deildarliði
Numancia fagnar marki í kvöld.
Numancia fagnar marki í kvöld.
Mynd: Getty Images
B-deildarlið Numancia gerði sér lítið fyrir og náði í jafntefli gegn Spánar- og heimsmeisturum Real Madrid á Santiago Bernabeu í spænska Konungsbikarnum í kvöld.

Real Madrid hvíldi sínar helstu stjörnur í kvöld eftir að hafa unnið fyrri leikinn örugglega 3-0.

Lucas Vázquez en Guilermo Fernandez jafnaði fyrir gestina. Lucas Vázquez kom Madrídingum aftur yfir eftir stundarfjórðung en viti menn, Guilermo Fernandez jafnaði aftur.

Real komst þó nokkuð þægilega áfram í 8-liða úrslitin, rétt eins og Deportivo Alaves. Villareal féll hins vegar úr leik gegn Leganes þar sem útivallarmörk réðu úrslitum.

Real Madrid 2 - 2 Numancia (5-2 samanlagt)
1-0 Lucas Vázquez ('10)
1-1 Guilermo Fernandez ('45)
2-1 Lucas Vázquez ('59)
2-2 Guilermo Fernandez ('82)
Rautt spjald: Dani Calvo, Numancia ('90)

Deportivo Alaves 2 - 0 Formentera (5-1 samanlagt)

Villareal 2 - 1 Leganes (2-2 - Leganes áfram)
Athugasemdir
banner
banner
banner