Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. október 2017 12:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Sevilla missteig sig í Baskalandi
Mynd: Getty Images
Athletic 1 - 0 Sevilla
1-0 Mikel Vesga ('43 )

Athletic Bilbao hafði betur gegn Sevilla í hádegisleiknum í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Þessi sigur Bilbao gefur Barcelona tækifæri til auka forskot sitt á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar þar sem Sevilla er í öðru sæti deildarinnar.

Eina markið í dag gerði Mikel Vesga fyrir Bilbao á markamínútunni, 43. mínútu.

Bilbao er núna með 11 stig um miðja deild á meðan Sevilla er með 16 stig, fimm stigum á eftir Barcelona.

Barcelona mætir Atletico Madrid í kvöld.

Laugardagur:
11:00 Athletic Bilbao - Sevilla
14:15 Getafe - Real Madrid (Stöð 2 Sport 3)
16:30 Alaves - Real Sociedad
18:45 Atletico Madrid - Barcelona (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner