Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 17. nóvember 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Norður-Lundúnaslagurinn á Emirates
Tottenham er í þriðja sæti ensku deildarinnar og vann Real Madrid 3-1 á heimavelli á dögunum.
Tottenham er í þriðja sæti ensku deildarinnar og vann Real Madrid 3-1 á heimavelli á dögunum.
Mynd: Getty Images
Helgin í enska boltanum hefst á Norður-Lundúnaslagnum þar sem Tottenham heimsækir Arsenal á Emirates leikvanginum.

Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem Tottenham er talið sigurstranglegra liðið gegn Arsenal, en hnignun þeirra rauðklæddu er augljós og uppgangur Spurs vægast sagt magnaður.

Liverpool mætir Southampton og hefur gestunum sjaldan gengið vel á Anfield, enda hefur Liverpool lagt það í vana sinn undanfarin ár að kaupa bestu menn Southampton.

Topplið Manchester City heimsækir Leicester á meðan West Brom fær Englandsmeistara Chelsea í heimsókn.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley taka á móti Swansea og þá eiga Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton útileik gegn botnliði Crystal Palace.

Manchester United tekur á móti Newcastle í lokaleik morgundagsins en svo er einn leikur á sunnudaginn og einn á mánudaginn.

Watford tekur á móti West Ham á sunnudeginum og Brighton fær Stoke í heimsókn mánudagskvöldið.

Laugardagur:
12:30 Arsenal - Tottenham (Stöð 2 Sport)
15:00 Liverpool - Southampton (Stöð 2 Sport)
15:00 Leicester - Man City
15:00 West Brom - Chelsea
15:00 Burnley - Swansea
15:00 Bournemouth - Huddersfield
15:00 Crystal Palace - Everton
17:30 Man Utd - Newcastle (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
16:00 Watford - West Ham (Stöð 2 Sport)

Mánudagur:
20:00 Brighton - Stoke (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner