Christian Cueva, landsliðsmaður Perú, var að vonum svekktur eftir 1-0 tap síns liðs gegn Dönum í fyrradag.
Cueva fékk tækifæri til þess að koma Perú yfir þegar liðið fékk víti í stöðunni 0-0.
Cueva tók tilhlaup sem minnti örlítið á tilhlaup Simone Zaza þegar hann misnotaði víti fyrir Ítalíu gegn Þýskalandi á EM 2016.
Niðurstaðan var sú sama hjá Cueva og Zaza, boltinn flaug hátt yfir markið.
Stuðningsmenn Perú sungu nafn hans eftir leikinn. „Það fyllti mig gleði," sagði Cueva við því.
„Ég sá einn besta leikmann í heiminum misnota víti líka."
Næsti leikur Perú verður fimmtudaginn 21. júní gegn Frakklandi.
Athugasemdir