Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. nóvember 2017 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Moreno missti af fæðingu sonar síns - Klopp biðst afsökunar
Mynd: Getty Images
Alberto Moreno, bakvörður Liverpool, gat ekki verið viðstaddur fæðingu sonar síns um helgina; Moreno þurfti nefnilega að spila leik gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni.

Moreno var staddur á liðshóteli Liverpool í undirbúningi fyrir leikinn þegar sonur hans kom í heiminn.

„Klukkan 02:30 í nótt fæddi, hans dásamlega kærasta, son þeirra, Alberto Moreno Jr. í Liverpool," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í samtali við heimasíðu Liverpool í gær.

„Hann var á liðshótelinu þegar sonur hans fæddist, ég bið kærustu hans afsökunar."

Alberto Moreno hefur fengið endurnýjun lífdaga á þessu tímabili og hefur bætt sig mikið. Hann hefur verið einn af bestu leikmönnum Liverpool hingað til á tímabilinu.

Hann átti góðan leik í gær í 3-0 sigri á Southampton.

Moreno fékk að hitta soninn eftir leikinn í gær eins og sjá má á myndinni hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner