Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. nóvember 2017 18:30
Magnús Már Einarsson
Adebayor: Rosicky meiddist ef maður spurði 'hvernig hefur þú það?'
Emmanuel Adebayor fagnar marki í leik með Arsenal.
Emmanuel Adebayor fagnar marki í leik með Arsenal.
Mynd: Getty Images
Emmanuel Adebayor, fyrrum framherji Arsenal, hefur talað opinskátt í fjölmiðlum undanfarna daga.

Adebayor hefur nú tjáð sig um Tomas Rosicky, fyrrum liðsfélaga sinn hjá Arsenal. Rosicky var mikið meiddur hjá Arsenal en hann lék samtals 170 deildarleiki á ellefu árum hjá félaginu.

„Ég var sterkastur í liðinu, þrátt fyrir að vera 73 kíló," sagði Adebayor.

„Chelsea var með Essien og Ballack á miðjunni á meðan við höfðum Rosicky. Ef þú sagðir svo mikið sem 'hvernig hefur þú það?' við hann þá varð hann meiddur í tvo og hálfan mánuð."

Sjá einnig:f
Adebayor íhugaði sjálfsmorð vegna fjölskyldu sinnar
Athugasemdir
banner
banner