Tveimur leikjum var að ljúka í ítalska boltanum.
Milan vann mikilvægan sigur á Cagliari með tveimur mörkum frá Jeremy Menez. Filippo Inzaghi þjálfari Milan er orðinn afar valtur í sessi og var jafnvel talið að slæm úrslit í kvöld gætu kostað hann starfið.
Með sigrinum í kvöld er Milan komið 7 sæti deildarinnar og upp fyrir nágranna sína í Inter. Starf Inzaghi ætti því að vera tryggt allavega í bili.
Fyrrverandi leikmaður Milan, Alberto Paloschi, kom mikið við sögu í hinum leik kvöldsins. Hann skoraði eina mark leiksins og misnotaði víti í sigri Chievo á Palermo. Sinisa Andjelkovic leikmaður Palermo fékk reisupassann eftir 86 mínútna leik.

Milan 3 - 1 Cagliari
1-0 Jeremy Menez ('21 )
1-1 Diego Farias ('47 )
2-1 Philippe Mexes ('49 )
3-1 Jeremy Menez ('78 , víti)
Chievo 1 - 0 Palermo
1-0 Alberto Paloschi ('35 )
1-0 Alberto Paloschi ('62 , Misnotað víti)
Rautt spjald:Sinisa Andjelkovic, Palermo ('86)
Athugasemdir