Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 21. október 2017 10:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Chelsea og Watford: Morata mættur aftur
Morata kemur inn í byrjunarlið Chelsea.
Morata kemur inn í byrjunarlið Chelsea.
Mynd: Getty Images
Hádegisleikurinn í enska boltanum í dag er á milli Chelsea og Watford á Stamford Bridge í Lundúnum.

Watford er líklega enn í sigurvímu eftir að hafa unnið Arsenal um síðustu helgi. Sigurmark Watford í 2-1 sigrinum á Arsenal kom í uppbótartíma. Fyrr um laugardaginn síðasta hafði Chelsea tapað mjög óvænt gegn Crystal Palace á Selhurst Park.

Leikur Chelsea og Watford hefst stundvíslega 11:30.

Antonio Conte var ekki sáttur með tapið um síðustu helgi og hann gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu. Antonio Rudiger, Pedro og Alvaro Morata koma inn í liðið. Stuðningsmenn Chelsea væntanlega mjög glaðir að sjá að Morata sé mættur aftur eftir meiðsli.

hjá Watford kemur inn Troy Deeney inn í byrjunarliðið, en hann jafnaði metin gegn Arsenal um síðustu helgi í 1-1.

Annars er þetta bara einfalt hjá Watford, ein breyting.

Hér að neðan eru bæði byrjunarlið.

Byrjunarlið Chelsea: Courtois, Rudiger, Cahill, Azpilicueta, Alonso, Luiz, Fabregas, Bakayoko, Hazard, Pedro, Morata.
(Varamenn: Caballero, Musonda, Zappacosta, Willian, Batshuayi, Christensen, Ampadu)

Byrjunarlið Watford: Gomes, Kabasele, Britos, Mariappa, Femenia, Cleverley, Doucoure, Holebas, Pereyra, Deeney, Richarlison.
(Varamenn: Karnezis, Janmaat, Wague, Gray, Watson, Carillo, Capoue)

Sjá einnig:
Richarlison segir frá því að byssu var beint að andlit hans
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner