Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 21. október 2017 16:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mendy öflugur á Twitter - Svaraði Íslendingi
Mynd: Getty Images
Benjamin Mendy, bakvörður Manchester City, er gríðarlega skemmtilegur á Twitter og það er gaman að fylgjast með honum.

Hann sér greinilega um Twitter aðgang sinn sjálfur og er ekki með menn í því fyrir sig eins og svo margir aðrir fótboltamenn.

Um þrjúleytið birti Mendy tíst þar sem hann sagði að hann væri að vakna, en það vakti furðu hjá Þórarni Stefánssyni sem ákvað að spyrja franska bakvörðinn af hverju hann væri að vakna svona seint.

Mendy tók vel í þetta og svaraði. Þar sagði Mendy að hann hefði orðið svo þreyttur eftir að hafa farið í endurhæfingu í morgun.

Mendy er í augnablikinu meiddur, en hann mun ekki snúa aftur á fótboltavöllinn fyrr en einhvern tímann á næsta ári.

Hér að neðan má sjá þegar Mendy svaraði Þórarni á Twitter í dag. Gaman að þessu!





Athugasemdir
banner
banner