Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 22. janúar 2018 22:01
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Malaga sótti stig
Mynd: Getty Images
Eibar 1 - 1 Malaga
0-1 Youssef En Nesiry ('16)
1-1 Kike ('76)
Rautt spjald: Zdravko Kuzmanovic, Malaga ('92)

Botnlið Malaga sótti stig gegn Eibar í eina leik kvöldsins í spænska boltanum.

Youssef En Nesiry kom gestunum yfir snemma leiks og ríkti mikið jafnræði með liðunum.

Bæði lið komust nálægt því að bæta marki við leikinn áður en Kike jafnaði fyrir heimamenn.

Zdravko Kuzmanovic fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili í uppbótartíma og var rekinn útaf, en bæði lið tóku stig með heim.

Malaga er sex stigum frá öruggu sæti og virðist dæmt til að falla, enda aðeins með 14 mörk skoruð í 20 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner