Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. febrúar 2017 19:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ronaldo kominn með 700 leiki
Ótrúlegur leikmaður
Ótrúlegur leikmaður
Mynd: Getty Images
Leikur Valencia og Real Madrid varð 700. leikur sem Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid spilar á ferlinum.

Valencia er 2-1 yfir eins og er en það var einmitt Ronaldo sem skoraði mark Real Madrid.

Ronaldo hefur átt ótrúlegan feril með Sporting Lisbon, Manchester United og Real Madrid og t.d. hefur hann unnið Gullboltann fjórum sinnum.

Með Manchester United vann Ronaldo deildina þrisvar, Meistaradeild Evrópu og Heimsmeistarakeppni félagsliða einu sinni á sex árum.

Hjá Real Madrid hefur hann unnið deildina einu sinni, bikarinn tvisvar, sem og Meistaradeild Evrópu og Heimsmeistarakeppni félagsliða tvisvar á átta árum.



Athugasemdir
banner
banner