Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. maí 2015 12:00
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: Heimasíða Arsenal 
Arsenal gefur milljón pund til Save the Children
Tveir þátttakendur í hlaupinu árið 2011
Tveir þátttakendur í hlaupinu árið 2011
Mynd: Arsenal klúbburinn á Íslandi
Arsenal FC tilkynnti á heimasíðu sinni að góðgerðarhlaup Arsenal, Be a Gunner – Be a Runner, hafi skilað einni milljón pund í tekjur sem gefið verður til Save the Children.

Hlaupið fór fram þann 11. apríl í ár en Arsenal klúbburinn á Íslandi tók þátt í hlaupinu í ár. Klúbburinn á Íslandi gaf ákveðna upphæð til málefnisins fyrir hvern þann einstakling sem tók þátt en hlaupið nýtur gríðarlega vinsælda úti.

Save the Children starfar í meira en 120 löndum til að bjarga lífum ungra barna og berjast fyrir réttindum þeirra og hjálpa þeim að láta rætast úr lífi þeirra.

„Við erum stolt af því að styrkja frábært starf Save the Children um heiminn. Ég er mjög ánægður með að við séum búin að safna einni milljón saman í málefnið og vill þakka leikmönnum og stuðningsmönnum okkar sérstaklega fyrir hjálpina,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal.
Athugasemdir
banner