Gísli Árni Gíslason, fótboltaáhugamaður: Ragnar Sig greinilega enn vel liðinn meðal stuðningsmanna FCK, tekið á Brøndby leiknum í gær #fotbolti #fotboltinet
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet
Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA:
Topp 3 í lífi mínu: 1) Vinir og vandamenn. 2) Kynlíf. 3) Vinna Fylki. #fotboltinet #pepsi365 #fotbolti
Ruth Þórðar, leikmaður Fylkis:
Topp3 kjánalegasta sem ég hef lesið 1) twittið frá fyrirliða þór/ka. 2) twittið frá fyrirliða þór/ka. 3) twittið frá fyrirliða þór/ka #fotbolti
Magnús Már Lúðvíksson, leikmaður Vals:
Byrjað að rigna í voginun, verður fjölnis leiknum ekki örugglega frestað ?
Einar Guðnason, fótboltaþjálfari:
Miðað við fréttir og Gróu á Leiti þá verða miklar hreyfingar á þjálfurum í október
Anton Tómasson, stuðningsmaður Selfoss:
Selfoss stelpur bara með 8 stig á heimavelli í ár á móti 21 á útivelli, einn heimaleikur eftir. #pepsideildin #fotbolti
Egill Einarsson, stuðningsmaður Manchester United:
Mjög ánægður að vera ekki í þessum bikar í kvöld. Bara gert til að þreyta menn og missa menn í meiðsli. Yndislegt líf.
Pálmi Harðarson, fótboltaáhugamaður:
Athygisvert útspil Valsara að hækka miðaverðið á móti FH. Ég sem hélt að 1.500 kr. væri "Ríkisverð" í Pepsi. #fotboltinet #pepsi365
Hafliði Breiðfjörð framkvæmdastjóri Fótbolta.net:
Hmmm... 145 áhorfendur. Hvað getum við gert til að fækka þessu fólki og losna við ónæðið úr stúkunni? Jú hækkum bara miðaverðið. #Valur
Gassi, Rajko, Ævar og Arsenij. pic.twitter.com/UCP4p8Jlo4
— KA (@KAakureyri) September 23, 2014
Athugasemdir