Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. apríl 2017 18:49
Elvar Geir Magnússon
Viðar Örn skoraði tvö og tryggði sigur Maccabi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson var maður leiksins þegar Maccabi Tel Aviv vann 3-1 útisigur gegn Bnei Sakhnin í ísraelsku deildinni í dag.

Viðar skoraði á 57. og 89. mínútu í leiknum og tryggði sínum mönnum stigin þrjú.

Viðar hafði verið í smá lægð í markaskorun en komst aftur á skrið í dag.

Maccabi er í öðru sæti og verður átta stigum frá toppliði Hapoel Beer Sheva ef liðið vinnur Maccabi Haifa í kvöld.

Hapoel Beer Sheva er 1-0 yfir þegar það er að detta í hálfleik en Hólmar Örn Eyjólfsson leikur fyrir Maccabi Hafia sem er í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner