Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. júní 2015 16:15
Magnús Már Einarsson
Salah vill vera áfram hjá Fiorentina
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah, kantmaður Chelsea, vill vera áfram hjá Fiorentina á láni.

Salah fór til Fiorentina á láni í janúar en hann hefur lítið spilað með Chelsea síðan hann kom til félagsins í byrjun árs 2014.

Hinn 23 ára gamli Salah er þó ekki einungis að hugsa um spiltíma því að peningurinn skiptir miklu máli hjá honum.

Salah er með 1,6 milljón punda í árslaun hjá Chelsea en hann vill fá 2,1 milljón punda fyrir árið hjá Fiorentina.

Inter hefur einnig áhuga á Salah og er tilbúið að borga honum 1,9 milljón punda í laun á ári en framtíð Egyptans ætti að koma í ljós á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner