West Ham ætlar að kaupa hægri bakvörðinn Kevin Malcuit frá franska félaginu St Etienne í sumar.
Sky Sports segir í dag að West Ham sé langt komið með að ganga frá kaupum á Malcuit á tíu miljónir punda.
West Ham vildi fyrst fá Malcuit í janúar en þá vildi St Etienne ekki selja.
Sky Sports segir í dag að West Ham sé langt komið með að ganga frá kaupum á Malcuit á tíu miljónir punda.
West Ham vildi fyrst fá Malcuit í janúar en þá vildi St Etienne ekki selja.
Hinn 25 ára gamli Malcuit hefur slegið í gegn síðan hann kom til St Etienne frá Niort á 500 þúsund pund fyrir einu og hálfu ári.
Malcuit þótti meðal annars standa sig vel í leikjunum gegn Manchester United í Evrópudeildinni á dögunum.
Athugasemdir