Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
   mið 29. júní 2016 09:30
Magnús Már Einarsson
Lars ætlar ekki að taka við Englandi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback hefur útilokað að taka við enska landsliðinu ef honum yrði boðið það.

Lars hættir með íslenska landsliðið eftir EM en norski þjálfarinn Egill „Drillo" Olsen skoraði í vikunni á Englendinga að ráða Lars í kjölfarið.

Hinn 67 ára gamli Lars var spurður út í ummæli Drillo á fréttamannafundi í dag og hvort hann væri tilbúinn að taka við Englandi.

„Ég held ekki. Ég átta mig á því þegar ég horfi í spegil að það er kominn tími á að slaka aðeins á," sagði Lars.

,Ég get vonandi verið eitthvað áfram í fótbolta en ég held að ég fari ekki í nýtt þjálfarastarf."

„Þetta er fallega sagt hjá Drillo og ég ber mikla virðingu fyrir honum en ég held að ég sé ekki einu sinni í myndinni hjá Englendingum. Þetta var langskot hjá Drillo. Ég óska honum góðs gengis og þakka honum fyrir þetta."

Athugasemdir
banner
banner
banner