Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór/KA
Þór/​KA
Besta-deild kvenna
Þórsvöllur
5 - 0
Tindastóll
Tindastóll
Dominique Jaylin Randle 62'1 - 0Karen María Sigurgeirsdóttir 64'2 - 0Una Móeiður Hlynsdóttir 68'3 - 0Hulda Ósk Jónsdóttir 79'4 - 0Hulda Ósk Jónsdóttir (víti) 92'5 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Þór/KA svaraði vel eftir hræðilegt áfall

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA gerði gersamlega út um leikinn með þremur mörkum á sjö mínútna kafla. Mörk breyta leikjum sagði einhver en Tindastóll skoraði mark í upphafi síðari hálfleiks sem var dæmt af en ég held að það hafi verið fyrir litlar sakir.

Bestu leikmenn

1. Hulda Ósk Jónsdóttir

Gersamlega tók yfir leikinn og var hreint stórkostleg síðasta hálftíman. Tvö mörk og tvær stoðsendingar!

2. Tahnai Annis

Átti góðan leik á miðjunni hjá Þór/KA.

Atvikið

Sandra María Jessen fer af velli undir lok fyrri hálfleiks vegna meiðsla en hún handleggsbrotnaði þegar hún átti skot í varnarmann Tindastóls en boltinn skaust aftur í hana. Gríðarlegt áfall fyrir hana og Þór/KA.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA fer í fjórða sætið, upp fyrir Þrótt sem gerði jafntefli gegn Breiðablik í kvöld. Blikar eru tveimur stigum á undan Þór/KA. Valur sem er á toppnum tapaði einnig stigum í kvöld. Tindastóll er í þriðja neðsta sæti, stigi frá fallsæti.

Vondur dagur

Stólarnir naga sig í handarbökin að nýta ekki þessa frábæru byrjun í seinni hálfleik. Mér fannst einnig Monica ansi óörugg í markinu.

Dómarinn - 5

Fannst mark Tindastóls í upphafi síðari hálfleiks ekki vera brot. Hannah leikmaður Tindastóls greip svo boltann undir lok leiksins og gaf vítaspyrnu og fékk gult, hún hefði alveg eins getað fengið rautt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.