Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
FH
FH
Besta-deild kvenna
Kaplakrikavöllur
Ekkert ský í lofti og sólin skýn.
2 - 1
ÍBV
ÍBV
Shaina Faiena Ashouri 5'1 - 01 - 121' Holly Taylor OneillGuðný Geirsdóttir (sjm) 70'2 - 1
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FHingar með sinn fjórða sigur í röð í deildinni

Hvað réði úrslitum?

Þetta var alls ekki frábær leikur hjá þessum báðum liðum, en FH voru miklu öflugari gegn ÍBV og áttu fleiri færi í leiknum. FH áttu þessi þrjú stig skilið.

Bestu leikmenn

1. Shaina Faiena Ashouri

Skoraði fyrsta mark leiksins og var mjög spræk í þessum leik.

2. Mackenzie Marie George

Átti fín hlaup og fínar sendingar inn í teig. Hún átti stórt hlutverk í fyrsta mark leiksins

Atvikið

Atvik leiksins er seinasta mark leiksins var mjög áhugavert. FH eiga hornspyrnu og lítur allt út fyrir að Guðný í marki ÍBV sé að fara grípa boltann. Guðný nær snertingu á boltann, en einhvern vegin dettur boltinn inn í markið.

Hvað þýða úrslitin?

Eins og taflan stendur liggur FH í 3. sæti deildarinnar með 16 stig og ÍBV liggur í 9. sæti deildarinnar með 7 sitg.

Vondur dagur

Mér fannst ekki nein af þessum liðum eiga neinn frábæran leik. Guðný í marki ÍBV var óheppin að ná ekki að grípa boltann, sem endaði með sjálfsmarki. Svo var ekki mikil ógn frá báðum liðinum í sókninni, og þá sérstaklega ekki hjá ÍBV. Mikið þeim skotum voru tekin fyrir utan teig og voru þau annahvort allt of laus þannig að markvörður náði léttilega að grípa boltann eða fór boltinn framhjá markinu.

Dómarinn - 7

Gunnar Freyr og hans teymi dæmdu fínan leik í dag. Það var alls ekki mikið verið að dæmi, því það gerðist lítið í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.