Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Keflavík
Keflavík
Besta-deild kvenna
HS Orku völlurinn
Sólin skín en eins og stundum áður í Keflavík er lognið á hraðferð.
1 - 1
Valur
Valur
Linli Tu 39'1 - 01 - 149' Bryndís Arna Níelsdóttir
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Gríðarsterkt stig Keflavíkur gegn Val

Hvað réði úrslitum?

Færanýting beggja liða. Keflavík fékk sín hættulegu færi og hefði alveg getað verið 2-0 yfir í hálfleik og þess vegna komist í 3-0 í upphafi þess síðari. Það gerðist þó ekki og Valur jafnaði þess í stað. Valskonur sóttu svo meira í síðari hálfleik en nýttu ekki þau tækifæri sem buðust og þar með talið vítaspyrnu og því fór sem fór.

Bestu leikmenn

1. Mikaela Nótt Pétursdóttir

Stoppaði svo mörg upphlaup Vals í leiknum að það var ómögulegt að telja. Heilt yfir virkilega góður leikur og hún hlýtur að fá skilaboð frá Ása Arnars í kvöld með þökkum fyrir góða frammistöðu og sterkt stig og það ekki bara fyrir Keflavík heldur líka Breiðablik þaðan sem hún er í láni frá.

2. Sigurrós Eir Guðmundsdóttir

Sigurrós gerði sitt ótrúlega vel í dag í hægri bakverði í fjarveru Caroline Slambruck. Skilaði boltanum vel frá sér og varðist vel og sýndi að það er alveg til breidd í þessu Keflavíkurliði líka.

Atvikið

Vítaspyrnuklúðrið. Lykilpunktur í leiknum fyrir mér sem sannfærði mig um að Valur ætti í mesta lagi eitt stig skilið út úr leiknum. Pétur og örugglega allir Valsara ósammála mér en bara mín skoðun og þar við situr.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík hoppar uppfyrir Stjörnuna og situr í sjötta sæti deildarinnar með 12 stig. Valur enn á toppnum og með sama forskot og áður á Breiðablik og Þrótt sem gerðu jafntefli í kvöld.

Vondur dagur

Fanndís Friðriksdóttir fleiri hundruð og fimmtíu leikir og álíka mörg mörk klikkar á vítapunktinum seint í leiknum. Súrt en annað eins hefur nú gerst og hún lætur þetta eflaust ekki stoppa sig á einn eða neinn hátt. Áfram gakk og on to the next one.

Dómarinn - 6

Hlutlaust hjá Bríeti í kvöld. Góð atriði hér og þar og annað eins í hina áttina. Get lítið kvartað yfir henni í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.