Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Þróttur V.
Þróttur V.
Fótbolti.net bikarinn
Vogaídýfuvöllur
0 - 1
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
0 - 190' Anel Crnac
Dómari: Jakub Marcin Róg

SKÝRSLAN: Flautað í fagnaðarlátum

Hvað réði úrslitum?

Hnífjafn bikarslagur tveggja jafnra liða. Þróttarar voru talsvert betri aðilinn í fyrri hálfleik og voru svekktir að vera ekki með forystuna í hálfleik. Ólsarar komu öflugir út í seinni hálfleik og tóku völdin. Allt stefndi í framlengingu en þá kom eina mark leiksins.

Bestu leikmenn

1. Anel Crnac - Víkingur Ó.

Öflugur í vörn sem hélt hreinu og reyndist svo hetjan í blálokin. Auðvelt val.

2. Aitor González - Víkingur Ó.

Markvörður Víkings átti flottar vörslur í fyrri hálfleik og kom í veg fyrir að Þróttur skoraði.

Atvikið

Flautumarkið. Hið fullkomna flautumark. Anel Crnac skallaði boltann inn, gestirnir fögnuðu og dómarinn flautaði af. Engin miðja tekin, bara mark og flautað af. Bikardramatík af bestu gerð.

Hvað þýða úrslitin?

Á morgun klukkan 11:00 verður dregið í 16-liða úrslitin. Þar verða Víkingar í pottinum og vonast eftir heimaleik. Þróttur Vogum kveður hinsvegar Fótbolti.net bikarinn þetta árið en koma væntanlega hungraðir til leiks í þessa keppni að ári, nema þeir fari upp í Lengjudeildina!

Vondur dagur

Þróttarar voru svekktir yfir því að nýta ekki yfirhöndina fyrir hlé til þess að skora, það hefði breytt leiknum mikið. Annars er óþarfi að tala um vondan dag þegar boðið er upp á svona ástríðubikarslag við flottar aðstæður og frábæra umgjörð.

Dómarinn - 7,5

Jakub Marcin Róg dæmdi þetta bara ansi vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.