SKÝRSLAN: Líf í Úlfarsárdal
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum er að Fram náði að skapa betri færi og nýtti þau vel á meðan Afturelding var meira að skapa hálffæri og skutu mikið yfir markið sem reyndi ekki mikið á Elaina í marki Fram.
Bestu leikmenn
1. Breukelen Lachelle Woodard
Breukelen átti frábæran dag og var mikið í boltanum og að skapa hættulegar stöður fyrir Fram. Hún skoraði einnig glæsilegt mark úr hornspyrnu.
2. Hildur Karítas Gunnarsdóttir
Hildur Karítas var mjög góð hjá Aftureldingu og flest sem að Afturelding gerði fór í gegnum hana.
Atvikið
Atvikið var þegar Ólína tvöfaldaði forystu Fram með skemmtilegri afgreiðslu og gerði brekkuna mun brattari fyrir Aftureldingu.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Fram eru komnar upp úr fallsæti með 7 stig, einu fleiri atig en KR.
En Afturelding er ennþá með 11 stig í 6. sæti.
Vondur dagur
Vörn Aftureldingar átti bara slæman dag allar saman. Engin ein sem er hægt að velja sem átti vondan dag.
Dómarinn - 5
Atli, dómari leiksins fær tæpa fimmu fyrir þennan leik. Hann missti leikinn frekar snemma úr höndunum og átti erfitt með að taka réttar ákvarðanir í stórum atvikum. Samt sem áður engin mikilvæg áberandi mistök sem hann gerði.


