SKÝRSLAN: Hvíti Riddarinn sló Tindastól úr .net bikarnum
Hvað réði úrslitum?
Baráttuhugur Hvíta Riddarans skilaði þeim sigurinn í kvöld, þetta kallar maður passion!
Bestu leikmenn
1. Eiríkur Þór Bjarkason
Eiki var flottur í dag, segist hafa átt stoðsendingiu á Hauk en það er ekki raunin, samt sem áður var hann með hlaupatölur í lagi og vinnusemi í lagi.
2. Alexander Aron Tómasson
Alexander stóð sig mjög vel í dag, komst á milli margra sendinga Stólanna og skoraði mark í þokkabót!
Atvikið
Fyrsta mark Hvíta Riddarans var hið merka atvik leiksins, alvörunni ísbrjótur á markaveislu seinni hálfleiksins
Hvað þýða úrslitin?
Hvíti Riddarinn kominn áfram í hinum háttvirta .net bikar!
Vondur dagur
Aðdáendur Tindastóls verða því miður að fá þennann titil. Alvöru svekk hjá þeim að hafa ferðast alla þessa leið fyrir þessi úrslit.
Dómarinn - 8
Solid í dag, get ekki kvartað!


