Fotbolti.net
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Víkingur R.
Víkingur R.
Lengjudeild kvenna
Víkingsvöllur
3 - 3
Grindavík
Grindavík
0 - 16' Jada Lenise ColbertNadía Atladóttir 23'1 - 1Nadía Atladóttir 25'2 - 12 - 242' Jada Lenise ColbertSigdís Eva Bárðardóttir 44'3 - 23 - 371' Jada Lenise Colbert
Dómari: Steinar Stephensen
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson

SKÝRSLAN: Markaveisla í Fossvoginum

Hvað réði úrslitum?

Stórskemmtilegur leikur á Víkingsvelli í kvöld! Jada Lenise fór á kostum og skoraði þrennu. Grindavík lá aftarlega á vellinum lengst af í leiknum og beittu skyndisóknum. Víkingur spilaði vel í kvöld, sérstaklega í fyrri hálfleik en fengu á sig klaufaleg mörk sem hefði átt að vera hægt að forðast

Bestu leikmenn

1. Jada Lenise Colbert

Jada var frábær í kvöld. Jada er öskufljót og olli varnarlínu Víkings miklum vandræðum. Jada skoraði þrennu í leiknum, og þriðja markið hennar var algjörn snilld. Frábær frammistaða.

2. Nadía Atladóttir

Nadía var allt í öllu fyrir lið Víkings í kvöld. Nadía skoraði tvisvar í leiknum í kvöld, og stafaði alltaf hætta af henni.

Atvikið

Það voru eiginlega tvö stór atvik í leiknum, fyrst þegar að Grindavík hreinsaði af línu en boltinn virtist þó hafa farið innfyrir. Seinna atvikið var þegar að Nadía fór niður í teignum eftir mikið klafs, og virtist hafa verið brotið á henni. Dómarinn dæmdi hins vegar ekki neitt.

Hvað þýða úrslitin?

Þessi úrslit hleypa mikilli spennu í toppbaráttunna í deildinni, þar sem HK er nú einungis þremur stigum á eftir Víkingi og eiga þær einn leik til góða. Grindavík færast upp um eitt sæti eftir jafnteflið í kvöld, og halda þær áfram að pota sér upp deildina.

Vondur dagur

Báðir markmennirnir gerðu mistök sem að leiddu að marki í leiknum í kvöld. það þyrfti þes vegna að segja að þær hafi átt vondan dag.

Dómarinn - 5

Steinar var í brasi í dag. Tvö risastór atriði sem má setja spurningarmerki við og var ekki nógu samkvæmur sjálfum sér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.