Fotbolti.net
Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Lengjudeild karla
Nettóhöllin-gervigras
Keflavík
Keflavík
1 - 2
ÍR
ÍR
0 - 124' Bragi Karl Bjarkason (víti)Valur Þór Hákonarson 26'1 - 11 - 245' Stefán Þór Pálsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Búið. Viðtöl og skýrslan koma seinna í kvöld.
93. mín
Renato með skot hátt yfir
Keflavík
91. mín
Gult spjald

Frans Elvarsson

Braut á Renato
91. mín
Fimm mínútna uppbót
90. mín
Guðjón skaut rétt framhjá marki Keflavíkur
90. mín
Sindri með skot í stöng.
87. mín
Síðustu mínúturnar. Ég held að ÍR klári þetta.
82. mín
Ekkert mikið að gerast síðustu mínútur.
Keflavík
81. mín
InnKári Sigfússon
ÚtValur Þór Hákonarson
ÍR
73. mín
InnRenato Punyed Dubon
ÚtStefán Þór Pálsson
72. mín
Það er allskonar klaufaskapur í vörn Keflavíkur held það styttist í næsta mark.
ÍR
68. mín
Gult spjald

Kristján Atli Marteinsson

Reif Kamel niður í skyndisókn með því að hanga í treyjunni hans og brjóta á honum í leiðinni. Rétt spjald.
67. mín
Alexander Kostic með skot hátt yfir.
66. mín
Kamel í dauðafæri eftir geggjaða sendingu frá Mamadou Diaw en Vilhelm Þráinn Sigurjónsson sá við honum og varði frábærlega.
65. mín
Ágúst Unnar Kristinsson með skot fyrir utan teig á fjær sem fór nokkuð framhjá stönginni.
64. mín
Það eru 300 áhorfendur hérna í dag.
Keflavík
63. mín
Gult spjald

Ásgeir Helgi Orrason

Fyrsta gula spjaldið eftir rúmlega klukkutíma leik, fyllilega verðskuldað Ásgeir Helgi braut á Alexander Kostic á vallarhelmingi Keflavíkur þegar hann brunaði upp í sókn.
Keflavík
62. mín
InnSindri Snær Magnússon
ÚtAri Steinn Guðmundsson
Keflavík
61. mín
InnMamadou Diaw
ÚtStefán Jón Friðriksson
ÍR
56. mín
InnBergvin Fannar Helgason
ÚtHákon Dagur Matthíasson
Fyrsta skiptingin í dag.
54. mín
Ekkert stórt að gerast í þessu það sem af er seinni hálfleiknum nema kannski jú að þykku skýjin fóru og sólin kom.
46. mín
Það er að þykkna verulega upp í Reykjanesbæ, rigningin fer að snúa aftur.
46. mín
Leikur hafinn
Allt klárt að nýju
Seinni hálfleikurinn er hafinn. Engar breytingar voru gerðar á liðunum í hálfleik.
45. mín
Nokkrar myndir
Ég skrapp út með myndavélina og tók nokkrar myndir í fyrri hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Kaffipása
Kominn hálfleikur í Reykjanesbæ. ÍR leiðir 1-2.
45. mín
Bragi Páll með einhverskonar bakfallsspyrnu en skotið framhjá.
45. mín
Þrjár mínútur í viðbótartíma.
45. mín
Eftir darraðadans í teignum nær Keflavík að hreinsa frá.
ÍR
45. mín
MAAAARK!

Stefán Þór Pálsson

Stefán Þór Pálsson kemur ÍR aftur yfir eftir fyrirgjöf af kantinum með skalla a fjær.
40. mín
Ari Steinn með þrumuskot að markinu en rétt framhjá.
38. mín
Valur braut á Hákon Dagur Matthíasson en fær tiltal.
35. mín
Hákon Dagur Matthíasson með þrumuskot sem Ásgeir Orri rétt nær að verja yfir markið.
Keflavík
26. mín
MAAAARK!

Valur Þór Hákonarson (stoðsending: Ásgeir Páll Magnússon)

Góð fyrirgjöf hjá Kemel og Valur Þór skallaði í markið af stuttu færi. Staðan strax orðin jöfn.
25. mín
Klaufaskapur í vörn Keflavíkur. ÍR aftur í færi en nú var dæmd rangstaða.
ÍR
24. mín
Mark úr víti!

Bragi Karl Bjarkason

Öruggur á punktinum.
22. mín
ÍR fær viti. Brotið á Guðjóni.
20. mín
Sami Kamel að sleppa í gegn en Vilhelm snöggur út og bjargar
19. mín
Óliver Elís Hlynsson með skot hátt yfir
15. mín
ÍR-ingar í stúkunni vilja víti eftir að Hákon Dagur Matthíasson féll í teignum en Oleksii Kovtun var nú ekki brotlegur þarna.
10. mín
Frans Elvarsson með skot fyrir utan teig, hitti bolta á lofti en skotið aðeins framhjá markinu.
9. mín
Dagur Ingi með skot í varnarmann og framhjá en gestirnir fá markspyrnu.
6. mín
Ari Steinn í góðu færi eftir sendingu frá Sami Kamel en Vilhelm Sigurjónsson varði frá honum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað
ÍR byrjar með boltann og leikur í átt að ÍR-vellinum í Breiðholtinu.
Fyrir leik
Stutt í leik
Liðin ganga nú út á völl svo það er stutt í að leikurinn hefjist. Keflavík í dökkbláum búning, treyja, buxur og sokkar en gestirnir í ÍR í hvítum treyjum og sokkum og bláum buxum.
Fyrir leik
Sólin að brjótast fram
Hér er spilað í dag, gervigrasvöllurinn við Reykjaneshöllina.Það er búið að vera þungskýjað og rigning í dag en nú er sólin að brjótast fram. Þetta er síðasti leikurinn hér í bili, kvennaliðið mætir Val á miðvikudaginn á grasinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Létt á milli þjálfaranna
Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur og Jóhann Birnir Guðmundsson annar þjálfara ÍR eru gamlir félagar úr Keflavíkurliðinu. Það er létt á milli þeirra meðan liðin hita sig upp fyrir átökin eins og meðfylgjandi mynd ber með sér.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Í dag er leikið á gervigrasinu við Reykjaneshöll en ég gerði mér ferð á leið á völlinn og skoðaði ástandið á aðalvelli Keflavíkur. Grasið er orðið grænt og fallegt eins og meðfylgjandi mynd ber með sér svo ég ætla að giska á að næsti leikur fari fram þar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikurinn í beinni
Fyrir leik
Hvað er hann að gera í þessari deild?
Sá leikmaður sem mest spenna er fyrir í Lengjudeildinni í sumar er Sami Kamel leikmaður Keflavíkur. Hann er ótrúlega góður leikmaður sem margir spyrja sig afhverju er ekki í betri deild.

Þegar Keflavík sló Breiðablik út úr Mjólkurbikarnum um daginn skoraði hann bæði mörk liðsins, og hvort hinu glæsilegra. Hvað gerir hann í leiknum í dag?
Sami Kamel í leik með Keflavík síðasta sumar. | Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Miklar breytingar hjá Keflavík
Keflavík hefur gert níu breytingar á sínum hóp síðan liðið féll úr Bestu-deildinni í fyrra en þó eru ekki margir lykilmenn þar á meðal. Þeir héldu flestum af sínum bestu.

Komnir
Ásgeir Helgi Orrason frá Breiðabliki á láni
Ari Steinn Guðmundsson frá Víði
Kári Sigfússon frá Þrótti Vogum
Mamadou Diaw frá Noregi
Rúnar Ingi Eysteinsson frá Augnabliki
Rúnar Gissurarson frá Þrótti Vogum
Jökull Máni Jakobsson frá Reyni S. (var á láni)
Óliver Andri Einarsson frá Reyni S. (var á láni)
Stefán Jón Friðriksson frá Þrótti V. (var á láni)

Farnir
Stefan Alexander Ljubicic til Skövde
Jordan Smylie til Ástralíu (var á láni hjá Haukum)
Mathias Rosenörn í Stjörnuna
Magnús Þór Magnússon hættur
Muhamed Alghoul til Króatíu
Robert Hehedosh til Króatíu
Sindri Þór Guðmundsson í Reyni S.
Viktor Andri Hafþórsson í Þrótt R.
Ísak Daði Ívarsson í Víking R. (var á láni)

   29.04.2024 15:00
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 3. sæti

   29.04.2024 15:30
„Búnir að jafna okkur á því og teljum okkur vel tilbúna"
Fyrir leik
Fimm út og fimm inn hjá ÍR
ÍR hefur gert nokkrar breytingar á liðinu sínu frá síðustu leiktíð, fimm hafa komið og aðrir fimm farið.

ÍR-ingar eru nýliðar í deildinni, voru að koma upp úr 2. deildinni í haust.

Komnir
Kristján Atli Marteinsson frá Þór
Marc McAusland frá Njarðvík
Marteinn Theodórsson frá ÍA
Renato Punyed frá Ægi
Hákon Dagur Matthíasson á láni frá Víkingi R.

Farnir
Ásgeir Börkur Ásgeirsson hættur
Ólafur Örn Ásgeirsson í Völsung (var á láni frá HK)
Ívan Óli Santos í Gróttu (var á láni)
Ernest Slupski í Hauka (var á láni frá Þrótti R.)
Dagur Þór Hafþórsson í FH (var á láni)
Kristján Atli Marteinsson kom frá Þór. | Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

   24.04.2024 16:00
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 11. sæti

   24.04.2024 16:30
„Ég hef séð flestöll liðin spila og er handviss að við getum unnið þau öll"
Fyrir leik
Fyrri viðureignir
Keflavík og ÍR hafa bara einu sinni verið í sömu deild á þessari öld og hafa því bara mæst tvisvar fyrir utan leiki í Lengjubikar. Það var sumarið 2017 þegar bæði lið voru í næst efstu deild sem þá bar nafnið Inkasso-deildin.

Keflvík vann báða leikina það sumarið, þann fyrri í Breiðholtinu 16. júní 1 - 3 og þann síðari í Keflavík 24. ágúst 3 - 2.

ÍR 1 - 3 Keflavík | 16. júní 2017
Smelltu hér til að sjá textalýsinguna
0-1 Hólmar Örn Rúnarsson ('25)
1-1 Andri Jónasson ('41)
1-2 Frans Elvarsson ('67)
1-3 Jeppe Hansen ('80)

Keflavík 3 - 2 ÍR | 24. ágúst 2017
Smelltu hér til að sjá textalýsinguna
1-0 Adam Árni Róbertsson ('27)
1-1 Már Viðarsson ('41)
1-2 Renato Punyed ('45)
2-2 Jeppe Hansen ('78)
3-2 Leonard Sigurðsson ('87)

Frans Elvarsson skoraði í leik liðanna 2017 og er enn í dag í Keflavík. | Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónassson er dómari leiksins í dag. Hann er með þá Jakub Marcin Róg og Ronnarong Wongmahadthai sér til aðstoðar á línunum. Enginn skiltadómari er í dag en KSÍ sendir Hjalta Þór Halldórsson til að hafa eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.
Helgi Mikael dæmir í dag. | Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Reykjanesbæ. Hér mætast Keflavík og ÍR í 1. umferð Lengjudeildar karla í dag.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 á gervigrasinu fyrir aftan Nettóhöllina.
Gervigrasvöllurinn við Nettóhöllina. | Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

   01.05.2024 09:00
Baddi gegn Benna - Spá fyrir 1. umferð Lengjudeildarinnar
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.