Leik lokið!
Þetta er búið, evrópureisa Vals er komin á endastöð, hún var stutt og skemmtileg. Nordsjælland var alltof erfiður andstæðingur. Takk fyrir að fylgjast með.
92. mín
Besta færi Valsmanna
Tryggvi með háa aukaspyrnu inn í teig heimamanna og Hólmar skallar rétt framhjá markinu. Dagur nær ekki að pota boltanum inn, besta færi Valsmanna.
91. mín
Sadio með aukaspyrnu langt frá, skotið er yfir markið. Langt yfir.
89. mín
Dómarinn að þvælast fyrir Nene og Janssen.
88. mín
Stöle og Markmann eru ekki að spila núna, þetta er 10 á móti 10.
86. mín
Stöle er niðri og þarf aðhlynningu, Stöle og Markmann skalla saman. Stöle fær brotið.
85. mín
Hornspyrna nr 10 fyrir Nordsjælland.
84. mín
Valur með skot á markið
Lúkas með skot fyrir utan teig en þetta var æfingabolti fyrir Hansen.
83. mín
Hætta
Hár bolti inn í teig á Sadio sem skýtur yfir markið. Sadio var alveg einn, enginn varnarmaður nálægt, Valsmenn vilja fara heim.
81. mín
Heimamenn eru ekki hættir og vilja skora fleiri mörk.
79. mín
Nordsjælland með hættulega aukapsyrnu beint í vegginn hjá Val.
78. mín
Gult spjald
Shkelzen Veseli
77. mín
Hetjudáðir
Sadio fær boltann við vítapunktinn, neglir beint á markið en Samúel Kári slædar fram fyrir skotið og ver markið. Þetta átti að vera 6-0.
73. mín
Samúel Kári með lélega snertingu, missir boltann á Sadio sem sendir á Nene. Nene er fyrir utan teig og neglir í átt að markinu.
Ef ég fæ að sletta ,,it gets bad to worse".
MAAAARK!
Levy Nene (stoðsending: Lamine Sadio )
Jæja.....Samúel Kári með lélega snertingu, missir boltann á Sadio sem sendir á Nene. Nene er fyrir utan teig og neglir í átt að markinu.
Ef ég fæ að sletta ,,it gets bad to worse".
71. mín
MAAAARK!
Lamine Sadio (stoðsending: Villum Berthelsen)
Hár bolti inn í teig á Janssen sem skallar á Berthelsen. Berthelsen fær boltann í sig og missir hann á Sadio sem er nánast við markið, Sadio skýtur framhjá Schram í markinu.70. mín
InnLevy Nene
ÚtPrince Amoako
69. mín
InnBjarni Mark Antonsson
ÚtJónatan Ingi Jónsson
68. mín
Prinsinn að leika á vörn Vals. Sendir inn í teig en það er enginn heimamaður til þess að taka á móti boltanum.
64. mín
Dagur Orri kemst í gott færi en sendir á Pedersen sem missir boltann frá sér.
64. mín
Loksins búin að skrá niður allar skiptingarnar, fékk líka mark í leiðinni. Smá brekka fyrir ykkar mann á vaktinni.
63. mín
Walker með takkana í Samúel, ekki þægilegt.
61. mín
MAAAARK!
Markus Walker (stoðsending: Victor Gustafsen)
Amoako kemst upp kantinn, sendir á Gustafsen sem er við D bogann. Gustafsen neglir beint á markið, Schram ver en út í teig og boltinn dettur á Walker sem skorar í autt markið.59. mín
InnLamine Sadio
ÚtNicklas Røjkjær
59. mín
InnJustin Janssen
ÚtHjalte Boe
59. mín
InnDagur Orri Garðarsson
ÚtJakob Franz Pálsson
59. mín
InnShkelzen Veseli
ÚtBirkir Heimisson
59. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtHörður Ingi Gunnarsson
59. mín
InnPatrick Pedersen
ÚtMarkus Lund Nakkim
58. mín
Gult spjald
Markus Lund Nakkim
Fer í markmannin. Boltinn dettur á Lúkas sem neglir í markið, heimamenn eru ekki ánægðir með þetta og vilja spjald á Lúkas.57. mín
Stöng
Tryggvi tekur hornspyrnuna sem fer alla leið á Hörð. Hörður sendir svo inn í teig á Nakkim sem er við stöngina, Nakkim skýtur svo í stöngina.
56. mín
Fyrsta horn Valsmanna, stórt.
53. mín
Amoako fer illa með Jakob, skýtur svo beint á markið og Schram ver.
52. mín
Dauðafæri
Boe keyrir inn í teiginn og kemst í gott færi, en skýtur beint á Schram.
52. mín
Dómarinn að þvælast fyrir og Valsmenn ná boltanum. Missa hann svo strax frá sér.
51. mín
Brotið á Jónatan.
49. mín
Væri nú ekki betra fyrir Val að skipta nokkrum lykilleikmönnum út af og reyna spara þá fyrir deildina. Nú bara spurning.
48. mín
Amoako með skot fyrir utan teig en það er framhjá.
46. mín
InnMateh Tuka
ÚtPeter Ankersen
46. mín
InnMarkus Walker
ÚtJuho Lähteenmäki
46. mín
Seinni hálfleikur
Heimamenn byrja.
45. mín
Hálfleikur
+4
Nordsjælland er búin að vera miklu betri, en Valsmenn hafa fengið nokkrar góðar sóknir og vildu þeir fá víti þótt að ég held að dómarinn gerði rétt þarna.
45. mín
+3
Villum Berthelsen (stoðsending: Juho Lähteenmäki)
Hörður tapar boltanum á vondum stað. Boe sendir á Amoako sem setur Lahteenmaki í gegn. Lahteenmaki sendir fram fyrir markið og Berthelsen skorar í autt markið.45. mín
+1
Hörður Ingi Gunnarsson
45. mín
+1
Jako Franz kemst inn í teiginn en missir svo boltann frá sér.
43. mín
Valsmenn fá ekki Víti
Lähteenmäki sparkar í Samúel Kára inn í teignum. Lähteenmäki tekur boltann fyrst segir dómarann eftir að hann var í skjánum í sirka 2 mínútur. Ég er sammála dómaranum.
42. mín
!!!
Dómarinn fer í skjáinn!
41. mín
Dómarinn er að skoða þetta, spurning um víti?
40. mín
Aukaspyrna dæmt á Samúel. Bæði Samúel og Lähteenmäki fara báðir í boltann og Lähteenmäki sparkar í Samúel, 50/50 sýnist mér. Samúel er sárþjáður eftir þetta. En það er VAR.
38. mín
Heimamenn halda áfram að setja pressu á Val. Væri fróðlegt að sjá hversu mikið Nordsjælland hefur haldið boltanum.
33. mín
Brink reynir hælsendingu á Berthelsen, en það virkar ekki.
32. mín
Nordsjælland með 15 skot, Valur með 2.
28. mín
Skot fyrir Val
Skyndisókn fyrir Val. Tryggvi á hægri kantinum, sendir háan bolta á Lúkas Loga sem er í þröngu færi en skýtur í hliðarnetið.
27. mín
Lähteenmäki með skalla rétt framhjá.
27. mín
Amoako á vinstri kantinum, cuttar in og skýtur, rétt framhjá.
24. mín
Derhúfan hans Schram með vörslu
Algjör miskilningur í vörn Valsmanna. Røjkjær keyrir inn í teig og nær boltanum, skýtur í markið en boltinn fer beint í hausinn hans Schram og yfir markið. Derhúfan flýgur af Schram.
22. mín
Fimmta horn heimamanna. Hár bolti á Bethelsen sem skallar inn í teig á Acquah sem er alveg einn. Acquah skallar á markið en Schram ver þægilega.
21. mín
Fyrsta skot Vals
Tryggvi á hægri kantinum, kemst framhjá Acquah með því að vippa boltanum yfir hann. Nær svo að skjóta, en skotið er langt framhjá og frekar lélegt. Hefði getað sent á Lúkas sem var í góðu færi.
20. mín
Nálægt
Boe í góðu færi inn í teig, skotið fer í Hólmar og Schram grípur boltann.
19. mín
Gustafsen á hægri kantinum, kemst framhjá nokkrum leikmönnum Vals og skýtur rétt framhjá.
17. mín
Brink reynir háa sendingu yfir vörn Vals en boltinn fer alla leið í markspyrnu.
16. mín
Samkvæmt Fotmob er Nordsjælland með 8 skot, 3 á markið.
15. mín
Þriðja hornspyrnan fyrir heimamenn.
Hornið fer alltof langt.
Hornið fer alltof langt.
13. mín
Tækifæri
Valur að komast í gott tækifæri. Jakob gat sent Tryggva 1v1 gegn Hansen en sendingin var aðeins of föst.
13. mín
Þessi leikur byrjar með látum, sýnist heimamenn ætla klára Val í fyrri hálfleik. Valsmenn varla með boltann inn á vallarhelming Nordsjælland.
11. mín
Varslaaa
Valsmenn að tapa boltanum aftur á hættulegum stað. Boe enn aftur skýtur á markið úr erfiðu færi, Schram ver en boltinn fer til Brink sem sendir fyrir markið en Veldman nær boltanum og kemur honum burt.
10. mín
Jakob Franz fær boltann á hægri kantinum og ætlar að senda inn í teig, en Jakob rennur og sendingin er mjög léleg.
10. mín
Þetta byrjar ekki vel fyrir Valsmenn, heimamenn búnir að skora og búnir að fá tvö dauðafæri.
9. mín
Varslaaa
Nakkim með slaka sendingu á Boe sem sendir á Brink inn í teig. Brink er í mjög góðu færi inn í teig, en skotið er beint á Schram sem ver með fótunum
8. mín
Amoako reynir að senda inn í teig en Nakkim nær boltanum og kemur honum burt.
6. mín
Heimamenn halda áfram að þjarma að Val.
4. mín
Hár bolti yfir vörn Vals á Amoako. Jakob Franz reynir að ná boltanum en er ekki nægilega sterkur og hann lætur Amoako taka af sér boltann. Amoako sendir á Boe sem er galopin og hann skorar í galopið markið.
Jakob Franz á að gera betur, krafa um það.
MAAAARK!
Hjalte Boe (stoðsending: Prince Amoako)
Úfffff....Hár bolti yfir vörn Vals á Amoako. Jakob Franz reynir að ná boltanum en er ekki nægilega sterkur og hann lætur Amoako taka af sér boltann. Amoako sendir á Boe sem er galopin og hann skorar í galopið markið.
Jakob Franz á að gera betur, krafa um það.
3. mín
Varslaaaa
Amoako er að dansa við Jakob Franz á hægri kantinum, Amoako nær að senda hátt á Bethelsen sem skýtur í átt að markinu en Schram ver vel.
2. mín
Valsmenn eru nú í 5 manna línu, Veldman er í miðverðinum og Jakob Franz í hægri bakverði.
1. mín
Valsmenn byrja á því að negla boltanum upp og missa hann út í innkast.
1. mín
Leikur hafinn
Valsmenn byrja þessa veislu.
Fyrir leik
Samkvæmt grafíkinni eru heimamenn að spila 3-4-3.
Grafíkin segir að Valsmenn að spila 4-3-3, þótt að ég gruna að þetta muni vera öðruvísi útfært í dag.
Schram
Hörður - Nakkim - Hólmar - Jakob
Birkir - Samúel - Veldman
Tryggvi - Lúkas Logi - Jónatan
Grafíkin segir að Valsmenn að spila 4-3-3, þótt að ég gruna að þetta muni vera öðruvísi útfært í dag.
Schram
Hörður - Nakkim - Hólmar - Jakob
Birkir - Samúel - Veldman
Tryggvi - Lúkas Logi - Jónatan
Fyrir leik
Leikmenn eru að koma sér inn á völlinn, það eru ekki mjög margir inn á vellinum. En það virðist vera gott veður.
Fyrir leik
Svona eru byrjunarliðin
Chris Brazell, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar frá sigrinum á Breiðabliki á sunnudag. Patrick Pedersen og Dagur Orri Garðarsson taka sér sæti á bekknum og inn koma þeir Jakob Franz Pálsson og Hörður Ingi Gunnarsson.
Skagamaðurinn Daniel Ingi Jóhannesson er á varamannabekk Nordsjælland. Sex breytingar eru á danska liðinu á milli leikjanna gegn Val.
Skagamaðurinn Daniel Ingi Jóhannesson er á varamannabekk Nordsjælland. Sex breytingar eru á danska liðinu á milli leikjanna gegn Val.
Fyrir leik
Valur
Valur vann 1-3 sigur á Breiðablik á sunnudag, mörk Valsara skoruðu Tryggvi Hrafn, Jónatan Ingi og Dagur Orri.
Valur þurfa nýta sér þennan sannfærandi sigur á Blikum í þessum leik og keyra á Nordsjælland hér í dag!

Valur þurfa nýta sér þennan sannfærandi sigur á Blikum í þessum leik og keyra á Nordsjælland hér í dag!

Fyrir leik
Nordsjælland
Nordsjælland situr í 5.sæti í dönsku deildinni, á sunnudaginn tóku þeir á móti Randers og unnu 1-0 sigur með dramtísku sigurmarki sem kom á 95 mínútu leiksins.
Í 2.umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar slátruðu Nordsjælland liði GAIS 6-0 á heimavelli eftir að hafa tapað fyrri leiknum 1-0 úti. Ég tel því líkur Vals mjög litlar í dag!

Í 2.umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar slátruðu Nordsjælland liði GAIS 6-0 á heimavelli eftir að hafa tapað fyrri leiknum 1-0 úti. Ég tel því líkur Vals mjög litlar í dag!

Fyrir leik
Dómarar
Aðaldómari í dag er Edgars Malcevs og honum til aðstoðar eru Martins Svipsts og Deniss Ševcenko.
myndbandsdómarar í dag eru þeir Kristaps Ratnieks og Andrejs Gluhovs.
Fjórði dómari er Aleksandrs Anufrijevs.
Dómararnir koma allir frá Lettlandi.

myndbandsdómarar í dag eru þeir Kristaps Ratnieks og Andrejs Gluhovs.
Fjórði dómari er Aleksandrs Anufrijevs.
Dómararnir koma allir frá Lettlandi.

Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Valsarar voru sprækir í fyrri leiknum þrátt fyrir 2-0 tap á heimavelli.
Nordsjælland komst yfir á 30 mínútu með geggjuðu marki! Villum Berthelsen ákvað að skóta lengst fyrir utan teig og skall boltinn í stöngina og inn.
Síðan komust Nordsjælland í tveggja marka forustu þegar Albin Skoglund braut klaufalega inn í teig og dómarinn var sendur í skjáinn og dæmdi víti sem þeir skoruðu úr.

Nordsjælland komst yfir á 30 mínútu með geggjuðu marki! Villum Berthelsen ákvað að skóta lengst fyrir utan teig og skall boltinn í stöngina og inn.
Síðan komust Nordsjælland í tveggja marka forustu þegar Albin Skoglund braut klaufalega inn í teig og dómarinn var sendur í skjáinn og dæmdi víti sem þeir skoruðu úr.

Fyrir leik
Evrópa kallar
Velkomin í beina textalýsingu á leik Nordsjælland og Vals í 3.umferð í Sambandsdeildinni.






