Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25085 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR04.06.2026, 20:30

Benfica fær 15 milljónir fyrir Mourinho

Portúgalska stórveldið Benfica hefur staðfest að José Mourinho mun ganga til liðs við Real Madrid ef Florentino Pérez verður endurkjörinn forseti um helgina.

FRÉTTIR04.06.2026, 18:56

Iraola: Þetta er eins gott og það gerist

Andoni Iraola er búinn að gera tveggja ára samning við Liverpool. Hann tekur við af Arne Slot eftir mikið vonbrigðatímabil í kjölfar Englandsmeistaratitils í fyrra.

FRÉTTIR04.06.2026, 14:36

Ekki spilað í þrjú ár en framlengir við Man Utd (Staðfest)

Tom Heaton hefur framlengt samning sinn við Manchester United um eitt ár. Heaton er þriðji markvörður félagsins og hefur ekki spilað keppnisleik fyrir Man Utd í meira en þrjú ár. Hann er 40 ára gamall og er sagður vera einn þeirra leikmanna sem hafa hvað mest jákvæð áhrif á æfingasvæðinu og er því verðlaunaður með nýjum samningi. Heaton hefur aðeins spilað þrjá keppnisleiki á síðustu fimm árum hjá United án þess að fá mark á sig.

FRÉTTIR04.06.2026, 11:54

Hjulmand rekinn frá Leverkusen - Þjálfari Tolouse tekur við (Staðfest)

Daninn Kasper Hjulmand hefur verið rekinn frá Bayer Leverkusen eftir að honum mistókst að koma liðinu í Meistaradeildina. Hjulmand tók við liðinu í upphafi tímabils eftir að Erik ten Hag var látinn fara eftir einungis tvo leiki með liðið. Liðið hafnaði í 6. sæti í Bundesliga, þremur stigum á eftir Meistaradeildarsæti.

FRÉTTIR03.06.2026, 20:33

Mourinho tekur við ef Pérez vinnur (Staðfest)

Forsetakosningar Real Madrid fara fram um helgina og er Florentino Pérez tilbúinn með nokkra nýja leikmenn og nýjan þjálfara sem verða kynntir til leiks ef hann nær endurkjöri.

FRÉTTIR03.06.2026, 17:55

Tufa tekinn við Herði (Staðfest)

Vladimir Tufegdzic hefur verið ráðinn aðalþjálfari Harðar á Ísafirði sem leikur í 5. deild og er án stiga eftir þrjár fyrstu umferðir deildartímabilsins.

FRÉTTIR03.06.2026, 16:51

Samningi Filip Stuparevic við ÍBV rift (Staðfest)

ÍBV og Filip Stuparevic hafa náð samkomulagi um riftun á samningi Serbans við félagið. Þetta staðfestir Magnús Sigurðsson sem er formaður fótboltadeildar ÍBV í samtali við Fótbolta.net. Filip hafði ekki verið í leikmannahópi ÍBV í síðustu tveimur leikjum. Sömu sögu er að segja af Milan Jezdimirovic en hann er áfram leikmaður ÍBV. Magnús segir það hafa verið ákvörðun þjálfarans að hafa þá utan hóps.

FRÉTTIR03.06.2026, 11:06

Napoli kaupir Höjlund (Staðfest)

Rasmus Hojlund hefur gengið varanlega til liðs við Napoli frá Manchester United. Hann skrifar undir samning til ársins 2030. Daninn lék með ítalska félaginu á láni á síðasta tímabili og var Napoli með kaupákvæði í samningnum upp á 38 milljónir punda og virkjaði félagið þá klásúlu. Framherjinn skoraði sextán mörk í 44 leikjum fyrir Napoli á tímabilinu. Man Utd keypti Hojlund frá Atalanta sumarið 2023 og nam kaupverðið um 64 milljónum punda. Alls lék hann 95 leiki fyrir félagið í öllum keppnum og skoraði 25 mörk.

FRÉTTIR03.06.2026, 06:00

Ganverjarnir í KR farnir til Sindra (Staðfest)

Sindri er búinn að krækja í tvo Ganverja úr röðum KR en þeir komu til Íslands sem hluti af samstarfi félagsins við <i>Field Masters</i> akademíuna í Gana.

FRÉTTIR02.06.2026, 22:24

Savinho sterklega orðaður við Tottenham

Tottenham Hotspur tókst að koma í veg fyrir óvænt fall í lokaumferð úrvalsdeildartímabilsins og ætlar félagið að styrkja sig í sumarglugganum.

FRÉTTIR01.06.2026, 14:40

Iniesta tekur við sínu fyrsta liði (Staðfest)

Andres Iniesta hefur landað sínu fyrsta þjálfarastarfi en hann var kynntur sem nýr stjóri Gulf United í Dúbaí. Liðið spilar í næstefstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og var félagið stofnað árið 2019. Í liðinu má finna fyrrum úrvalsdeildarleikmanninn Leroy Fer og fyrrum framherja sænska landsliðsins, Robin Quaison. Iniesta er 42 ára gamall og hefur unnið að þjálfaragráðum síðustu misseri. Hann lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum eftir að hafa gert garðinn frægan með Barcelona og spænska landsliðinu. Hann fer álíka leið og fyrrum liðsfélagi sinn Xavi en hann hóf þjálfaraferilinn með Al Sadd í Katar áður en hann tók síðar við Barcelona.

FRÉTTIR01.06.2026, 12:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Jón Daði og breyting hjá Liverpool

Liverpool ákvað að fara í stjórabreytingu og er Andoni Iraola líklegur til þess að taka við starfinu. Jón Daði Böðvarsson hefur þá ekki verið með Selfossi í síðustu tveimur leikjum. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR01.06.2026, 12:00

Sonur Ancelotti tekur við Lille (Staðfest)

Davide Ancelotti er tekinn við Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í Lille. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Davide er 36 ára Ítali og er sonur hins sigursæla þjálfara, Carlo Ancelotti. Davide hefur aðstoðað föður sinn hjá Real Madrid, Bayern München, Napoli, Everton og nú síðast hjá brasilíska landsliðinu. Hann mun enn aðstoða pabba sinn á HM þrátt fyrir ráðninguna hjá Lille. Liðið endaði í 3. sæti í Ligue 1 á síðustu leiktíð og verður því með í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Þrátt fyrir það var ákveðið að segja skilið við Bruno Genesio sem hafði stýrt liðinu í tvö ár.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.