Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 07:45
Ívan Guðjón Baldursson
Míchel ráðinn til Ajax (Staðfest)
Mynd: EPA
Hollenska stórveldið Ajax er búið að kynna Spánverjann Míchel til leiks sem næsta stjóra félagsins.

Míchel er fimmtugur fráfarandi þjálfari Girona á Spáni. Hann gerði flotta hluti á fimm ára tímabili við stjórnvölinn þar en mistókst að bjarga liðinu frá falli í vor.

Míchel hefur einnig þjálfað Huesca og Rayo Vallecano á Spáni en á ferli sínum sem leikmaður lék hann lengst af með Rayo. Hann þótti gríðarlegt efni á sínum yngri árum og lék 34 leiki fyrir yngri landslið Spánar en fékk aldrei tækifæri með A-landsliðinu.

Hann tekur við eftir vonbrigðatímabil hjá Ajax sem endaði þó á jákvæðu nótunum þegar liðið tryggði sér þátttöku í Sambandsdeildinni fyrir næstu leiktíð. Míchel gerir tveggja ára samning við stórveldið sögufræga sem var með leikmenn á borð við fyrrum úrvalsdeildarleikmennina Oleksandr Zinchenko, Takehiro Tomiyasu, Davy Klaassen og Wout Weghorst á sínum snærum á leiktíðinni.

Þeir renna þó allir út á samningi í sumar nema Klaassen, sem er fyrirliði og á eitt ár eftir.

   11.05.2026 08:00
Vilja helst Spánverja til að taka við



Slapp
banner
banner