03.06.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ganverjarnir í KR farnir til Sindra (Staðfest)

Mynd: KR

Mynd: KR
Sindri er búinn að krækja í tvo Ganverja úr röðum KR en þeir komu til Íslands sem hluti af samstarfi félagsins við Field Masters akademíuna í Gana.
Annar þeirra heitir Fuseini Issah. Hann er sóknarmaður fæddur 2005 sem hefur skorað 2 mörk í 9 leikjum með KV, venslaliði KR. Hann er með fjóra skráða leiki í 3. deild og Mjólkurbikarnum án þess að skora.
Fredrick Delali er miðjumaður fæddur 2007 sem hefur spilað tíu leiki með A-liði 2. flokks hjá KR, sem leikur í A-deild Íslandsmótsins.
Björn Daníel Sverrisson er spilandi þjálfari Sindra sem leikur í 3. deildinni og er aðeins með 4 stig eftir 5 umferðir.

TENGT EFNI