Þýska stórveldið RB Leipzig er í viðræðum við Brighton um að lengja lánsdvöl Brajan Gruda hjá félaginu.
Gruda er 22 ára sóknartengiliður sem kom með beinum hætti að 6 mörkum í 13 deildarleikjum á láni hjá Leipzig á seinni hluta nýliðinnar leiktíðar.
Leipzig vill fá Gruda lánaðan út næstu leiktíð með kaupmöguleika eða kaupskyldu, en Þjóðverjinn á aðeins tvö ár eftir af samningi hjá Brighton.
Gruda er með 20 leiki að baki fyrir U21 landslið Þýskalands og þykir efnilegur.
Brighton er tilbúið að skoða að lána Gruda aftur til Leipzig ef hann skrifar undir framlengingu á núverandi samningi sínum við úrvalsdeildarfélagið, eða ef það er kaupskylda innifalin í lánssamningnum.
Talið er að Brighton vilji fá um 60 milljónir evra fyrir Gruda, sem samsvarar rúmum 50 milljónum punda.
02.02.2026 09:44
Gruda lánaður til RB Leipzig (Staðfest)





