Vladimir Tufegdzic hefur verið ráðinn aðalþjálfari Harðar á Ísafirði sem leikur í 5. deild og er án stiga eftir þrjár fyrstu umferðir deildartímabilsins.
Vladimir, betur þekktur sem Tufa ekki ósvipað nafna hans Srdjan Tufegdzic, tekur við hjá Herði eftir að félagið sameinaðist við 2. flokk hjá Vestra í vikunni.
Strákarnir í Herði og 2. flokki Vestra munu æfa og spila saman undir leiðsögn Tufa sem verður með Einar Óla Guðmundsson sér til aðstoðar.
Tufa flutti á Ísafjörð fyrir sex árum og lék yfir 100 leiki fyrir Vestra. Hann var mikilvægur hlekkur í liðinu sem kom Vestra upp í efstu deild og vann svo Mjólkurbikarinn í fyrra.
Tufa býr yfir góðri reynslu úr þjálfun yngriflokka hjá Vestra og þekkir vel til strákanna sem munu koma til með að spila fyrir hann í sumar.
„Stjórn Harðar er afar spennt fyrir komandi samstarfi við Vestra og telur það stórt skref í áframhaldandi uppbyggingu ungra knattspyrnumanna á Vestfjörðum," segir í tilkynningu frá Herði.




