Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   þri 02. júní 2026 22:24
Ívan Guðjón Baldursson
Savinho sterklega orðaður við Tottenham
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tottenham Hotspur tókst að koma í veg fyrir óvænt fall í lokaumferð úrvalsdeildartímabilsins og ætlar félagið að styrkja sig í sumarglugganum.

Eitt helsta skotmarkið er brasilíski kantmaðurinn Savinho sem er meðal öftustu manna í goggunarröð kantmanna hjá Manchester City.

Tottenham reyndi við Savinho í fyrra en mistókst að kaupa leikmanninn og reyndi svo aftur við hann í janúarglugganum en fékk neitun.

Leikmaðurinn er talinn vilja skipta um félag þar sem hann fékk aðeins rúmar 1500 mínútur í öllum keppnum á nýliðnu tímabili og kom að 7 mörkum með beinum hætti í 36 leikjum.

Savinho er aðeins 22 ára gamall og með fimm ár eftir af samningi við City, en félagið er reiðubúið til að selja hann fyrir rétta upphæð - eða um 60 milljónir punda.

Xavi Simons stjörnuleikmaður Tottenham er spenntur fyrir þessum yfirvofandi félagaskiptum og birti mynd af sér ásamt Savinho í Instagram Story, frá því þegar þeir voru samherjar hjá PSV Eindhoven tímabilið 2022-23.

Savinho er með 13 leiki að baki fyrir Brasilíu en var ekki valinn í landsliðshópinn fyrir HM.

   03.10.2025 19:38
Savinho búinn að skrifa undir (Staðfest)

Slapp
banner
banner