Hinn 37 ára gamli Enrique Riquelme er í baráttu um að verða forseti Real Madrid og lét stór orð falla í gær.
Riquelme talaði um Rodri og Erling Haaland sem helstu skotmörk sín ef hann verður kjörinn forseti um helgina, auk þess að José Mourinho yrði ekki ráðinn sem þjálfari.
04.06.2026 06:34
Riquelme ætlar að krækja í Haaland og Rodri
Umboðsteymi norsku markavélinnar Haaland var fljótt að bregðast við ummælunum.
„Þetta er allt mjög skemmtilegt en á sér enga stoð í raunveruleikanum. Við óskum báðum aðilum í forsetakjöri Real Madrid alls hins besta," segir í stuttri yfirlýsingu frá Alfie Haaland og Rafaela Pimenta, umboðsteymi Erling Haaland.
03.06.2026 20:33
Mourinho tekur við ef Pérez vinnur (Staðfest)





