Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
   fim 04. júní 2026 06:34
Ívan Guðjón Baldursson
Riquelme ætlar að krækja í Haaland og Rodri
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hinn 37 ára gamli Enrique Riquelme ætlar að reyna að steypa Florentino Pérez forseta Real Madrid af stóli eftir sautján ára dvöl hans í forsetastólnum.

Riquelme svaraði spurningum í gær og lét stór orð falla í tilraun sinni til að næla sér í forsetatitilinn.

„Ef ég vinn forsetakosningarnar þá verður Rodri nýr leikmaður Real Madrid, ég get ábyrgst að ég mun gera allt í mínu valdi til að koma því í kring," sagði Riquelme.

„Ef ég vinn kosningarnar mun ég ráða inn ofurstjörnu sem þjálfara. Stærsta nafn sem þið getið ímyndað ykkur. José Mourinho er ekki þjálfarinn okkar, við munum sækja þjálfara sem allir stuðningsmenn Real Madrid vilja sjá stýra aðalliðinu.

„Erling Haaland og Rodri eru stjörnuleikmennirnir sem ég vil krækja í ef ég vinn forsetakosningarnar."


Talið er að Riquelme sé að horfa til Pep Guardiola, fráfarandi þjálfara Manchester City, þegar kemur að því að velja næsta þjálfara félagsins.

   03.06.2026 20:33
Mourinho tekur við ef Pérez vinnur (Staðfest)

Slapp
banner
banner