Andres Iniesta hefur landað sínu fyrsta þjálfarastarfi en hann var kynntur sem nýr stjóri Gulf United í Dúbaí.
Liðið spilar í næstefstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og var félagið stofnað árið 2019.
Í liðinu má finna fyrrum úrvalsdeildarleikmanninn Leroy Fer og fyrrum framherja sænska landsliðsins, Robin Quaison.
Iniesta er 42 ára gamall og hefur unnið að þjálfaragráðum síðustu misseri. Hann lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum eftir að hafa gert garðinn frægan með Barcelona og spænska landsliðinu.
Hann fer álíka leið og fyrrum liðsfélagi sinn Xavi en hann hóf þjálfaraferilinn með Al Sadd í Katar áður en hann tók síðar við Barcelona.

???? Dubai dreams bigger.
— Gulf United FC (@GulfUnitedFC) June 1, 2026
And some stories deserve another chapter.
Marhaba, Andrés Iniesta.
??? ?????? ???? ???? ????.
???? ????? ????? ????? ??????.
??????? ?????? ???????. ????@andresiniesta8 pic.twitter.com/tUQqbqQ10n