Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25098 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR22.08.2025, 20:23

Alex Moreno frá Aston Villa til Girona (Staðfest)

Alex Moreno er genginn til liðs við Girona frá Aston Villa. Kaupverðið er óuppgefið. Moreno er 32 ára gamall Spánverji og spilar sem vinstri bakvörður en hann var fyrsti leikmaðurinn sem Unai Emery fékk til liðsins í janúar 2023. Hann kom frá Real Betis og kostaði Villa 13,2 milljónir punda.

FRÉTTIR22.08.2025, 09:28

Torino fær Asllani frá Inter

Albanski miðjumaðurinn Kristjan Asllani hefur kosið að fara til Torino frekar heldur en Bologna eftir að bæði lið reyndu að krækja í hann í sumar.

FRÉTTIR21.08.2025, 23:03

Douglas Luiz til Forest (Staðfest)

Brasilíski miðjumaðurinn Douglas Luiz er genginn í raðir Nottingham Forest frá Juventus. Samningurinn er á formi lánsdvalar í eitt ár með skilyrtum skuldbindingum um kaup sem verða framkvæmd næsta sumar.

FRÉTTIR21.08.2025, 15:10

Tveir leikmenn í Bayer Leverkusen (Staðfest)

Argentínumaðurinn efnilegi, Claudio Echeverri, er genginn í raðir Bayer Leverkusen á láni frá Manchester City. Franski miðvörðurinn Loic Bade skrifaði líka undir á sama tíma en hann er keyptur frá Sevilla. Þýska félagið staðfesti þessi tíðindi í dag.

FRÉTTIR21.08.2025, 11:30

Noah Okafor frá AC Milan í Leeds (Staðfest)

Leeds hefur gengið frá kaupum á svissneska framherjanum Noah Okafor frá AC Milan. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Leeds en kaupverðið er um 18 milljónir punda.

FRÉTTIR21.08.2025, 09:00

Amine Adli til Bournemouth (Staðfest)

Bournemouth hefur keypt miðjumanninn Amine Adli frá Bayer Leverkusen fyrir rúmar 25 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður gerir fimm ára samning. Adli er landsliðsmaður Marokkó og býr yfir fjölhæfni. Hans aðalstaða er sem sóknarmiðjumaður en hann getur einnig spilað á báðum köntum eða sem fremsti maður.

FRÉTTIR20.08.2025, 10:00

Bailey kynntur hjá Roma (Staðfest)

Kantmaðurinn Leon Bailey er genginn í raðir ítalska félagsins Roma frá Aston Villa. Hann kemur á lánssamningi en Roma er með ákvæði um að geta keypt hann að tímabilinu loknu. Í tilkynningu frá Roma segir að Bailey sé fyrsti Jamaíkamaðurinn í sögu félagsins. Bailey fæddist í Kingston en fluttist til Evrópu þrettán ára gamall og hefur spilað fyrir Genk, Bayer Leverkusen og Aston Villa.

FRÉTTIR19.08.2025, 18:40

Alexander Rafn til Nordsjælland næsta sumar (Staðfest)

<p>Alexander Rafn Pálmason leikmaður KR fer til FC Nordsjælland sumarið 2026, en það kemur fram í fréttatilkynningu frá KR. Hann skrifar undir þriggja ára samning, en ástæðan fyrir því að hann fer ekki strax er sú að leikmenn þurfa að vera orðnir 16 ára gamlir til þess að skipta yfir í erlent lið.</p>

FRÉTTIR19.08.2025, 18:00

Miguel Gutierrez til Napoli (Staðfest)

Vinstri bakvörðurinn Miguel Gutierrez er genginn í raðir Napoli frá Girona en hann er keyptur á um 20 milljónir punda. Hann stóðst læknisskoðun í dag og skrifaði svo undir fimm ára samning. Gutierrez hélt upp á 24 ára afmæli sitt í síðasta mánuði en hann var í akademíu Real Madrid. Hann var svo seldur til Girona fyrir 4 milljónir evra 2022 og spilaði feikilega vel. Læknisskoðunin var mjög ítarleg því hann fór í aðgerð í maí vegna ökklameiðsla.

FRÉTTIR19.08.2025, 10:30

Boro fær norska undrabarnið frá Man City (Staðfest)

Norski miðjumaðurinn Sverre Nypan er genginn í raðir Middlesbrough á láni frá Manchester City út tímabilið sem var að hefjast. Nypan er gífurlega efnilegur leikmaður sem gekk á dögunum í raðir Man City frá Rosenborg þar sem hann byrjaði að spila með aðalliðinu þegar hann var 15 ára gamall.

FRÉTTIR19.08.2025, 09:43

Hraðasti leikmaður Ítalíu til Wolves (Staðfest)

Jackson Tchatchoua hefur verið keyptur til Wolves frá ítalska A-deildarliðinu Hellas Verona fyrir 10,8 milljónir punda. Þessi 23 ára kamerúnski landsliðsmaður getur spilað sem hægri bakvörður eða vængbakvörður og var hraðasti leikmaður ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili samkvæmt mælingum.

FRÉTTIR18.08.2025, 18:16

Ben Doak frá Liverpool til Bournemouth (Staðfest)

Ben Doak er genginn til liðs við Bournemouth frá Liverpool. Kaupverðið er í kringum 25 milljónir punda. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið. Liverpool hefur selt leikmenn fyrir rúmlega 227 millljónir punda í sumar.

FRÉTTIR18.08.2025, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Salah brotnaði niður

Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi og það er óhætt að segja að lesendur Fótbolta.net hafi haft mikinn áhuga á fréttum tengdum enska boltanum síðustu daga. Flestar mest lesnu fréttir síðustu viku tengjast enska boltanum en þetta er skemmtilegasti tími ársins.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.